Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sjúkraþjálfari í þverfaglegt endurhæfingarteymi

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir sjúkraþjálfara í 70% starf í þverfaglegt endurhæfingarteymi í Árborg. Um er að ræða tímabundið 3 ára starf á heilsugæslu.

Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í metnaðarfullu teymi, starfið er nýtt og hefur starfsmaður því tækifæri til að hafa áhrif á þróun nýrrar þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í þverfaglegu teymisstarfi  
  • Ráðgjöf til heimahjúkrunar og félagsþjónustu vegna vitjana 
  • Mat á stöðu og færni einstaklinga í heimahúsi og skráning í samræmi við verklag 
  • Gerð endurhæfingaáætlana, uppsetningu þjálfunaráætlana, fræðsla, leiðbeiningar og eftirfylgd.  
  • Mat á hjálpartækjaþjörf og ráðgjöf um val og notkun hjálpartækja 
  • Þátttaka í faglegri þróun þjónustunnar og mótun verklags innan endurhæfingarteymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sjúkraþjálfari með starfsleyfi frá Landlækni 
  • A.m.k. 3 ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari 
  • Góð íslenskukunnátta í tali og rituðu máli er skilyrði
  • Reynsla af teymisvinnu, heimaþjónustu eða endurhæfingu er kostur  
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni  
  • Ökuréttindi 
Fríðindi í starfi

Frábært mötuneyti á staðnum

Auglýsing birt15. mars 2026
Umsóknarfrestur27. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar