

Mörk hjúkrunarheimili - Íþróttafræðingur / aðstoðarmaður sjúkraþjálfara
Mörk hjúkrunarheimili óskar eftir íþróttafræðing eða aðstoðarmanni í sjúkraþjálfun.
Mörk hjúkrunarheimili er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa rúmlega 200 manns.
Áhersla er lögð á góðan starfsanda, sterka liðsheild og hvetjandi starfsumhverfi.
Sjúkraþjálfun Markar hjúkrunarheimilis leitar að íþróttafræðingi eða aðstoðarmanni í sjúkraþjálfun. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem lögð er áhersla á góða teymisvinnu.
Starfshlutfall er samkomulag
Menntunar- og hæfniskröfur
- BS gráða í íþrótta- og heilsufræði (Ef við á).
- Íslenskukunnátta.
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni.
- Starfsmaður þarf að hafa náð 18 ára aldri.
- Stundvísi og metnaður í starfi
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að heilsustyrk.
- Stytting vinnuvikunnar.
- Öflugt starfsmannafélag.
Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og SFV.
Starfað er eftir Eden hugmyndafræðinni.
Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar veitir
María Guðnadóttir, deildarstjóri sjúkraþjálfunar
[email protected]
Íslenska



