

Sjúkraliði / Verkefnastjóri Grund
Við á Grund hjúkrunarheimili erum að bæta við þann góða hóp sjúkraliða sem er starfandi við heimilið.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem við leggjum mikla áherslu á góða teymisvinnu. Leitað er eftir áhugasömum sjúkraliða með faglegan metnað, góða samskiptahæfni og jákvætt viðmót. Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi, dagvinna möguleg.
Hæfniskröfur
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
- framhaldsnám æskilegt
Greitt er eftir kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Virðing, Vinátta og Vellíðan eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi. Á Grundarheimilunum er unnið samkvæmt Eden hugmyndafræðinni.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Sigrún Faulk hjúkrunarframkvæmdastjóri
[email protected] 530 6100
Theodóra Theodórsdóttir mannauðsstjóri
[email protected] 530 6100
Við hlökkum til að heyra frá þér !












