

Sjúkraflutningar á Patreksfirði
HVest óskar eftir að ráða sjúkraflutningamann á starfsstöð stofnunarinnar á Patreksfirði til að sinna sjúkraflutningum á bakvöktum. Um áhugavert og fjölbreytt starf er að ræða. Áhugasamir, konur jafnt sem karlar, eru hvattir til þess að sækja um starfið.Starfið er unnið í tímavinnu og á bakvöktum og því gefst tækifæri á að sinna öðrum störfum samhliða ef áhugi er fyrir því.
Að sinna sjúkraflutningum á dagvinnutíma, kvöld og nætur.
Viðkomandi þarf að hafa starfsleyfi sjúkraflutningamanns útgefið af Embætti Landlæknis. Neyðarflutingsréttindi er kostur og séu þau ekki til staðar þarf viðkomandi að vera reiðubúinn til að afla sér þeirra. Gerð er krafa um gott líkamlegt og andlegt atgerfi. Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Íslenskukunnátta áskilin.
Íslenska







