

Settu orku í þjónustuna - þjónusturáðgjafi í Reykjavík
Við leitum að hugrakkri og árangursdrifinni manneskju til að gegna starfi þjónusturáðgjafa á skrifstofu okkar í Reykjavík. Fylgdu straumnum til Rarik og hjálpaðu okkur að veita framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni þjónustuvers eru að veita viðskiptavinum okkar þjónustu og ráðgjöf. Við vinnum að stöðugum umbótum og sinnum fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar um allt land. Þjónusturáðgjafi í Reykjavík sinnir einnig ýmis konar verkefnum sem tengjast rekstri skrifstofunnar.
Þjónusturáðgjafar okkar þurfa að búa yfir afbragðsfærni í samskiptum og hafa jákvæðni, frumkvæði og metnað að leiðarljósi í störfum sínum. Öguð vinnubrögð, skipulagshæfni og góð tölvukunnátta skipta einnig máli, sem og áhugi á stafrænum lausnum. Mikilvægt er að hafa góða færni í að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku. Reynsla af notkun CRM-kerfis er kostur.













