
Sérkennsluteymi – leikskólinn Ösp
Við þurfum að bæta við sérkennsluteymið okkar í leikskólanum Ösp. Markmið og áherslur teymisins er að stuðla að jöfnum tækifærum barna til að láta drauma sína rætast.Lögð er áhersla á auðugt málumhverfi, vellíðan og starfsaðferðir sem mæta þörfum fjölbreytileika barnahópsins, sem er með ríkan tungumála- og menningarbakgrunn.
Leikskólakennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa í leikskólann Ösp, sem er staðsettur í hjarta Fellahverfisins. Sérkennsluteymið leggur áherslu á samvinnu, markmiðasetningu og að nýta fjölbreyttar leiðir sem styðja við almennan þroska barna. Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi, þar sem enginn dagur er eins og við sköpum ný ævintýri á hverjum degi. Spennandi þróunarverkefni er í gangi um mál og læsi, með leikskólanum Holti og Fellaskóla.
- Að veita börnum leiðsögn og stuðning í samstarfi við aðra starfsmenn.
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
- Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði, lágmark á stigi C1 skv. evr. tungumálarammanum
- Reynsla af starfi í leikskóla.
- Reynsla af sérkennslu æskileg.
- Stundvísi og faglegur metnaður.
- Frumkvæði, áhugi og vilji til að leita nýrra leiða.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.












