
Sérfræðingur í mannauðsmálum
Lyfjastofnun óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf sérfræðings í mannauðsmálum sem hefur brennandi áhuga á því að gera góðan vinnustað enn betri. Starfið er fjölbreytt og felur í sér tækifæri til að móta, þróa og bæta mannauðsmál stofnunarinnar í nánu samstarfi við mannauðsstjóra, stjórnendur og starfsfólk.
Um 100% starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
- Umsjón með móttöku og aðlögun nýs starfsfólks.
- Ábyrgð á þróun og framkvæmd fræðslu og starfsþróunar.
- Ábyrgð á þróun og innleiðingu hæfni- og þekkingarstjórnunar.
- Umsjón með gæðaskjölum, verklagi og starfsmannahandbók.
- Umsjón með beiðnakerfi og umbótum í mannauðsferlum.
- Skipulagning og umsjón með viðburðum fyrir starfsfólk.
- Samstarf við háskóla, fræðsluaðila og starfsmannafélag.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi.
- Reynsla af mannauðsmálum sem nýtist í starfi.
- Þekking og/eða reynsla af starfsþróunar- eða fræðslumálum er kostur.
- Þekking og/eða reynsla af hæfni- og þekkingarstjórnun er kostur.
- Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð skipulags- og verkefnastjórnunarhæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð stafræn hæfni.
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 70 starfsmenn. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott starfsumhverfi þar sem styrkleikar fólks fá að njóta sín, tækifæri eru til starfsþróunar og stutt er við heilbrigt jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.
Íslenska
Enska
