Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Sérfræðingur í alþjóðlegum efnahagsmálum og fjármálamörkuðum

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan sérfræðing í teymi fjármálamarkaða á sviði fjármálastöðugleika til að móta og sjá um greiningu og miðlun efnis um þróun erlendra efnahagsmála og áhættu tengdri alþjóðastjórnmálum.

Eitt meginverkefna Seðlabankans er að stuðla að stöðugu, öruggu og virku fjármálakerfi. Svið fjármálastöðugleika hefur umsjón með greiningu á áhættu í fjármálakerfinu, fylgist með þróun þess, styrk, skilvirkni og áhrifum efnahagslegra þátta á kerfið í heild sinni. Einnig tekur sviðið þátt í mótun varúðarreglna fyrir fjármálakerfið, ber ábyrgð á framkvæmd álagsprófa og fylgist með greiðslumiðlun og fjármálainnviðum með það að markmiði að stuðla að öryggi, virkni og hagkvæmni.

Markmið deildar fjármálamarkaða er að varðveita stöðugleika fjármálakerfisins í heild með því að takmarka kerfisáhættu, styrkja viðnámsþrótt og lágmarka þannig hættu á fjármálaáföllum. Sérfræðingurinn mun bera ábyrgð á skrifum fyrir ritið Fjármálastöðugleika ásamt öðrum greiningum fyrir Seðlabankann.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgjast með og greina þróun erlendra fjármálamarkaða, stjórnmála og efnahagsmála og meta möguleg áhrif hér á landi.
  • Greina m.a. alþjóðlega skuldsetningu, vaxtaþróun, lausafjáráhættu, ríkisfjármálaáhættu og gjaldeyris-, hrávöru- og eignamarkaði.
  • Þróa greiningar og gagnasöfn.
  • Skrifa í rit bankans, m.a. Fjármálastöðugleika, kynna niðurstöður og rannsóknir. 
  • Taka þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. í hag- eða verkfræði. Framhaldsmenntun er kostur. 
  • Góð þekking á  fjármálamörkuðum og þjóðhagfræði.
  • Þekking á helstu miðlunarleiðum alþjóðlegra áfalla yfir í raunhagkerfið og fjármálakerfið er kostur.
  • Reynsla af greiningu á alþjóðlegri efnahagsþróun, fjármálamörkuðum, geópólitískri áhættu eða fjármálastöðugleika er kostur.
  • Reynsla af vinnu með gagnagrunna er æskileg.
  • Reynsla af tímaraðagreiningum og notkun tölfræðiforrita er kostur. 
  • Öguð og nákvæm vinnubrögð, greiningarhæfni og frumkvæði. 
  • Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum. 
  • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Auglýsing birt16. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁhættugreiningPathCreated with Sketch.AlþjóðaviðskiptiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.HagfræðingurPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar