

Sérfræðingur í viðskiptaþróun og greiningum
Sérðu tækifæri þar sem aðrir sjá bara gögn?
Vistor leitar að metnaðarfullum og drífandi sérfræðingi í viðskiptaþróun og greiningum sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun fyrirtækisins og lyfjamarkaðarins á Íslandi.
Við leitum að einstaklingi sem er sterkur í greiningum en hugsar lengra, sér tækifærin í gögnunum, finnur bestu lausnirnar og kemur þeim í framkvæmd.
Starfið hentar einstaklingi sem þrífst í hröðu og krefjandi umhverfi, tekur frumkvæði og getur tekið upplýstar ákvarðanir af öryggi. Við viljum manneskju sem er stöðugt að velta fyrir sér: Getum við gert þetta betur, hraðar eða snjallar?
Þú starfar náið með markaðsstjóra og sérfræðingum í viðskiptaþróun og greiningum þar sem gögn, markaðsinnsýn og ný tækni eru nýtt til að finna tækifæri, bæta ákvarðanatöku og þróa lausnir sem skapa virði fyrir Vistor og samfélagið í heild.
- Greina markaðinn, þróun, trend og ný viðskiptatækifæri
- Umbreyta gögnum og upplýsingum í skýra innsýn og tillögur að aðgerðum
- Finna tækifæri til sjálfvirknivæðingar og stöðugra umbóta á verkferlum
- Nýta gervigreind og stafrænar lausnir til að einfalda vinnu og styrkja ákvarðanatöku
- Vinna að áætlanagerð, eftirfylgni og greiningu á árangri
- Framkvæma kostnaðar-, ábata- og viðskiptagreiningar
- Vinna að verðútreikningum og umsóknum um greiðsluþátttöku
- Vinna með og eiga samskipti við birgja, opinbera aðila og samstarfsaðila
- Taka virkan þátt í þróun nýrra lausna og verkefna þvert á fyrirtækið
Enska
Íslenska




