COWI
COWI
COWI

Sérfræðingur í veituhönnun

Starfstöð COWI á Akureyri, Tryggvabraut 10.

Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Hefur þú áhuga á hönnun veitulagna í nærumhverfi fyrir opinbera- og einkaaðila? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.

Helstu verkefni og ábyrgð

COWI á Íslandi leitar að sérfræðingi í veituhönnun. Með nýrri aðstöðu og góðri verkefnastöðu skapast aukið rými til vaxtar á starfsstöðinni á Akureyri og því erum við að leitast eftir reyndum hönnuði til að ganga til liðs við okkur í deild samganga og veitna. Á starfsstöðinni á Akureyri eru 8 starfsmenn en 20 sérfræðingar starfa á deild samganga og veitna sem fást við fjölbreytt verkefni sem snúa að framkvæmdaeftirliti og mælingum, veituhönnun, samgöngutækni og útboðum á verklegum framkvæmdum.

Lykilþættir starfsins eru:

  • Hönnun fráveitu, vatnsveitu og hitaveita í þéttbýli og dreifbýli.
  • Gerð verklýsinga og magnskráa.
  • Gerð kostnaðaráætlana.
  • Gerð efnislista.
  • Samskipti við viðskiptavini.
Menntunar- og hæfniskröfur

Til að ná árangri í þessari stöðu teljum við að þú ættir að vera þjónustusinnaður, sveigjanlegur einstaklingur sem er frábær í að byggja upp sambönd, gefa gaum að smáatriðum og alltaf opinn fyrir nýjum áskorunum.

Að auki erum við að leitast eftir:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. verk- eða tæknifræði.
  • Reynslu af hönnun veitna.
  • Reynslu af hönnun í Civil 3D.
  • Jákvæðu viðhorf og frumkvæði í starfi.
  • Góðum samskiptahæfileikum.
  • Nákvæmi og sjálfstæðum vinnubrögð.
  • Íslenskukunnáttu í tali og rituðu máli.
Fríðindi í starfi

Við bjóðum líka uppá

  • Nýtt og glæsilegt skrifstofuhúsnæði.
  • Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika í bland við vinnu á starfsstöð.
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrk.
  • Starfsmannafélag með fjölbreyttum nefndum og viðburðum.
  • Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi.
  • Starfsþróunarmöguleika innan COWI og rafræna þjálfun hjá COWI Academy.
  • Árlegt heilsufarsmat.
Auglýsing birt28. maí 2026
Umsóknarfrestur16. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.IðnfræðingurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar