

Sérfræðingur í umhverfismati
VILT ÞÚ STARFA Á NÚTÍMALEGUM VINNUSTAÐ SEM LEGGUR ÁHERSLU Á FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTU OG ÁRANGURSDRIFIÐ VINNUUMHVERFI?
Skipulagsstofnun hefur nú sameinast HMS í eina öfluga stofnun (Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun) sem ber ábyrgð á ferlinu frá skipulagi til fullbúins mannvirkis ásamt öllu sem tengist manngerðu umhverfi. Með sameiningunni varð til sterkari stofnun með aukna getu til að vinna að þeim spennandi kerfisbreytingum í húsnæðis- og skipulagsmálum sem boðaðar eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Við leitum því að metnaðarfullu og kraftmiklu starfsfólki í teymi umhverfismats til að efla þjónustu okkar við almenning og hagaðila í umhverfismati framkvæmda og áætlana. HMS býður upp á árangursdrifinn vinnustað með skýr markmið, stefnu og gildi sem hjálpa okkur að vinna saman og ná lengra. Þú færð tækifæri til að leggja þitt af mörkum í verkefnum sem skipta sköpum fyrir samfélagið.
Hlutverk teymis umhverfismats er vinna að lögbundinni afgreiðslu, ráðgjöf og upplýsingagjöf á sviði umhverfismats framkvæmda og áætlana.
- Álitsgerð um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, ákvarðanir um matsskyldu framkvæmda og ráðgjöf til framkvæmdaraðila, leyfisveitenda og annarra hagsmunaaðila.
- Yfirferð og umsagnir um umhverfismat áætlana
- Ýmis verkefni við miðlun, leiðbeiningar og kynningarmál um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
- Þátttaka í vinnu við þróun leiðbeininga, laga og reglugerða á sviði umhverfismats framkvæmda og áætlana.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði náttúrufræði eða skyldra greina.
- Þekking og reynsla af umhverfismati og skipulagsmálum
- Þekking og reynsla af starfi innan opinberrar stjórnsýslu er kostur
- Góð greiningarfærni, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð samskipta- og samstarfshæfni ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti
Enska
Íslenska

