

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Datera óskar eftir metnaðarfullum einstaklingi til að bætast í öflugan hóp sérfræðinga í stafrænni markaðssetningu. Viðkomandi mun fá tækifæri til að vinna með fjölbreyttum og áhugaverðum viðskiptavinum og sinna krefjandi verkefnum í skapandi og lifandi umhverfi.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af stafrænni markaðssetningu og er tilbúinn að tileinka sér þekkingu á árangursríkum stafrænum auglýsingaherferðum.
- Umsjón með herferðum á helstu stafrænu miðlum (Meta, Google, TikTok, Reddit o.fl.)
-
Sérhæfð vinna við efnis- og upplýsingabestun (SEO og GEO)
-
Markviss samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini
-
Greining gagna og skýrslugerð til að meta árangur herferða
-
Áætlanagerð og þátttaka í stefnumótun
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
-
Reynsla af vinnu við stafrænar auglýsingar
-
Þekking og reynsla af META og Google auglýsingakerfunum
-
Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
-
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
-
Frumkvæði og skipulagshæfni
-
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Datera er þekkingar- og ráðgjafafyrirtæki á sviði markaðssetningar og birtinga. Við sérhæfum okkur í gagnadrifnum og sjálfvirkum auglýsingaherferðum, leitarvélaherferðum og sérhæfðri birtingaráðgjöf. Við hámörkum árangur og nýtingu markaðsfjár viðskiptavina okkar með þekkingu, innsæi og nýjustu tæknilausnum á sviði stafrænnar markaðssetningar.
-
Lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi í miðbæ Reykjavíkur
-
Greiddur hádegismatur þrjá daga vikunnar
-
Ávextir, snarl og frískandi drykkir alla daga
-
Virkt fræðslustarf
-
Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
-
Öflugt félagslíf
Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar 2026.
Íslenska
Enska










