
Sérfræðingur í skipulagsmálum
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita leitar eftir einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á skipulagsmálum.
Undir embættið heyra skipulags-, seyru- og byggingarmál sex sveitarfélaga. Viðkomandi þarf að vera jákvæður, ábyrgur og með góða skipulagshæfni ásamt lipurð í mannlegum samskiptum. Sérfræðingur í skipulagsmálum mun starfa í nánu samstarfi við skipulagsfulltrúa, starfsfólk og hagaðila innan sem utan embættisins með það að markmiði að stuðla að fagmennsku, mótun og þróun skipulagsmála.
· Ráðgjöf og upplýsingagjöf um skipulagsmál.
· Samskipti og bréfaskrif.
· Undirbúningur funda skipulagsnefndar, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
· Rýna og yfirfara skipulagsgögn.
· Önnur tilfallandi verkefni tengd skipulags- og lóðamálum.
· Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi. Skipulagsfræði eða sambærilegt.
· Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er æskileg.
· Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
· Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi.
· Hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
· Góð almenn tölvukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2026. Umsóknir skulu berast í gegnum vefinn alfred.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Nanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri, – [email protected]
Íslenska
