
Sérfræðingur í menntateymi Grænfánans
Grænfáninn á Íslandi
Við leitum að skapandi og drífandi einstaklingi til starfa í menntateymi Landverndar.
Menntateymið hefur umsjón með alþjóðlegu menntaverkefnunum Grænfánanum og Umhverfisfréttafólki.
Grænfánaverkefnið er rekið á öllum skólastigum á Íslandi og talið eitt besta innleiðingartæki menntunar til sjálfbærni í dag. Umhverfisfréttafólk er spennandi verkefni þar sem ungu fólki gefst tækifæri til þess að kynna sér umhverfismál, miðla þeim og senda í keppni á vegum Landverndar.
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og greinagerð þar sem ástæða umsóknar eru útlistuð, hæfni viðkomandi til að gegna starfinu lýst og listi yfir 2-3 meðmælendur gefinn. Umsóknir skulu sendar á [email protected] merktar „Grænfánaumsókn“. Umsóknarfrestur er til…
Nánari upplýsingar veitir Sigurlaug Arnardóttir verkefnisstjóri Grænfánans, [email protected] og í s. 6914261
· Úttektir í þátttökuskólum
· Sjá um kynningar og námskeið í skólum og víðar
· Ráðgjöf til skóla varðandi umhverfismál og menntun til sjálfbærni
· Námsefnisgerð
· Kynningarmál menntaverkefna Landverndar
· Skipuleggja viðburði ásamt menntateymi
· Vinnur að þróun og framgangi menntaverkefna ásamt menntateymi
· Háskólapróf, kostur ef það er á sviði mennta - eða umhverfisvísinda
· Færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
· Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
· Góð færni í íslensku og ensku
· Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á menntun til sjálfbærni
· Góð þekking á upplýsingamiðlun
· Reynsla af starfi í skólum og/eða starfi með börnum og ungmennum er æskileg
Íslenska
Enska





