

Ert þú orðheppinn textasmiður?
Háskólinn í Reykjavík óskar eftir orðheppnum textasmið á samskiptasvið háskólans sem hefur það hlutverk að vera leiðandi í skrifum á miðlum háskólans bæði á íslensku og ensku. Starfið hentar einstaklingi sem brennur fyrir fréttaskrifum og miðlun vísinda- og rannsóknastarfs, viðburða og alls þess sem snertir starfsemi HR. Textasmiður fer almennt með ritstjórn á útgefnu efni og á í samskiptum og samvinnu við fólk þvert á deildir og stoðsvið og tekur virkan þátt í markaðs- og kynningarstarfi samskiptateymisins.
Helstu verkefni:
- Ritstjórn og skrif á texta fyrir ytri og innri vefi HR.
- Umsjón með skrifum frétta og fréttatilkynninga.
- Þátttaka í hlaðvarpi HR.
- Umsjón með gerð kynningarbæklinga háskólans og ritstjórn þeirra.
- Yfirlestur á texta á íslensku og ensku og ráðgjöf til starfsfólks HR.
- Textagerð fyrir markaðsefni.
- Þátttaka í daglegu markaðs- og kynningarstarfi samskiptasviðs.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun í íslensku, ensku eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af frétta- og greinaskrifum og ritstjórn.
- Framúrskarandi íslensku- og enskukunnáttu.
- Áhugi og þekking á háskólaumhverfinu.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og vilji til að vinna í hóp.
- Hæfileiki til að hugsa út fyrir boxið og leita nýrra lausna.
Umsóknir berist rafrænt í gegnum umsóknarvef Háskólans í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild Háskólans í Reykjavík, [email protected], og Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskipta, [email protected].
Enska
Íslenska

