
Sérfræðingur í mannauðsmálum
Olíudreifing óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan aðila í stöðu sérfræðings í mannauðsmálum. Leitað er að lausnamiðuðum einstaklingi með brennandi áhuga á mannauðsmálum til að taka þátt í mótun og framkvæmd mannauðsstefnu fyrirtækisins. Um er að ræða nýtt hlutverk innan fyrirtækisins og tilheyrir starfið fjármála- og mannauðssviði en viðkomandi vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur allra deilda. Um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Uppbygging og framkvæmd mannauðsmála og ráðgjöf til stjórnenda
- Umsjón með ráðningarferli og nýliðamóttöku
- Ábyrgð á mannauðsferlum, umsjón með vinnustaðagreiningum og umbótaverkefnum
- Ábyrgð á fræðslu og þjálfun starfsfólks
- Þátttaka í jafnlaunavottun og launasetningu
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði mannauðsstjórnunar, viðskiptafræði eða tengdum sviðum
- Reynsla af mannauðsmálum, sérstaklega á sviði ráðninga og fræðslu
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og vilji til að vaxa í starfi
- Þekking á vinnurétti og kjaramálum er kostur
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Um Olíudreifingu
Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis. Rekið er þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi á raf- og vélbúnaði. Starfsmenn eru um 130 talsins á starfsstöðvum víðsvegar um landið.
Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

