Eimskip
Eimskip
Eimskip

Sérfræðingur í Greininga- og verkefnadeild

Eimskip leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í fullt starf sérfræðings í Greininga- og verkefnadeild Innanlandssviðs félagsins.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem unnið er náið með teymum og hagsmunaaðilum innan félagsins til að tryggja að verkefni séu unnin á skilvirkan og árangursríkan hátt. Starfið krefst nákvæmni, frumkvæðis og góðrar hæfni í greiningu og innleiðingu ferla og kerfa á sviðinu.

Á Innanlandssviði starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á 18 starfsstöðvum víðs vegar um landið. Sviðið er leiðandi í innanlandsflutningum og vörudreifingu, og sinnir jafnframt vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðningur við innleiðingu tölvukerfa í samvinnu við Upplýsingatæknisvið
  • Tryggja framvindu verkefna og að þau séu unnin innan tímaramma og kostnaðaráætlunar
  • Greining og endurskoðun á ferlum til að bæta skilvirkni og árangur
  • Samvinna við hagsmunaaðila til að skilgreina kröfur og væntingar
  • Þjálfun og stuðningur við notendur nýrra kerfa
  • Skýrslugerð og kynning á framvindu verkefna til stjórnenda
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af því að leiða verkefni er kostur
  • Góð kunnátta í greiningu og endurskoðun ferla
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Sterk leiðtogahæfni og geta til að vinna sjálfstætt
  • Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að takast á við áskoranir
  • Sveigjanleiki og geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Góð þekking á upplýsingatækni
Fríðindi í starfi
  • Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira
  • Gott mötuneyti og matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk
  • Nútímaleg vinnuaðstaða
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Auglýsing birt4. júní 2025
Umsóknarfrestur12. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar