
Sérfræðingur í gagna- og upplýsingastjórnun
Dómstólasýslan leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf sérfræðings í gagna- og upplýsingastjórnun hjá dómstólasýslunni. Ef þú hefur áhuga á að koma að uppbyggingu gagnasafna og greiningu upplýsinga með aðstoð tæknilausna er starfið fyrir þig.
Dómstólasýslan er sjálfstæð stjórnsýslustofnun sem fer meðal annars með yfirstjórn upplýsinga- og tæknimála við dómstóla og annast þróun þeirra. Unnið er að stafrænni þróun og fjölbreyttum umbótaverkefnum í þágu dómstóla með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði og miðla upplýsingum um starfsemi þeirra.
Helstu verkefni:
- Koma að mótun framtíðarsýnar, þróun og forgangsröðun stafrænna lausna
- Þróa og skipuleggja hagnýt gagna- og upplýsingasöfn
- Samþætta gögn og vinna með gagnamódel. Tryggja að lausnir vinni vel saman svo sem með API vefþjónustum eða stafrænu vinnuafli
- Vinna tölfræðigreiningar, skýrslur og setja upp mælaborð
- Þróa og innleiða lausnir til að einfalda skjalavinnslu, flokkun og aðgengi að upplýsingum, t.d. með notkun tæknilausna
- Tryggja að tæknilausnir styðji við reglur um skjalavörslu, í samvinnu við skjalastjóra
- Tryggja að upplýsingar á vef séu réttar, uppfærðar og aðgengilegar
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af greiningu og vinnslu tölfræðigagna og annarra upplýsinga sem og framsetningu og miðlun þeirra
- Reynsla af notkun gervigreindar til greininga, upplýsingavinnslu og framsetningu upplýsinga
- Reynsla og mjög góð færni í notkun Excel og Power BI eða sambærilegs hugbúnaðar
- Reynsla og þekking á Microsoft Azure umhverfinu er kostur
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Metnaður til að tileinka sér nýjungar í upplýsingastjórnun
- Framsýni og frumkvæði í starfi
- Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
- Mjög góð færni í íslensku
Nánari upplýsingar um dómstólasýsluna má finna á www.domstolasyslan.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, menntun og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Kristín Haraldsdóttir, framkvæmastjóri dómstólasýslunnar ([email protected]).
Íslenska


