

Sérfræðingur í framkvæmdaeftirliti
Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.
COWI á Íslandi leitar að sérfræðingum í eftirlitsstörf við og á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Helstu verkefni eru eftirlit með framkvæmdum við jarðvinnu, veitulagnir, vega- og gatnagerð, byggingar og aðra mannvirkjagerð. Við erum að fjölga í byggingarstjórnardeildinni okkar hjá COWI, en í deildinni starfa fjöldi sérfræðinga sem vinna að fjölbreyttum verkefnum fyrir viðskiptavini okkar við eftirlitsstörf, byggingastjórn og verkefnastjórn.
- Daglegt eftirlit með framkvæmdum í samræmi við áætlanir, kröfur, staðla, lög og reglugerðir
- Samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila.
- Úttektir og skýrslugerðir vegna eftirlits.
- Skjalaskráning og vistun gagna.
- Þátttaka á verkfundum.
COWI er þekkingarfyrirtæki og byggjum við reksturinn á þekkingu og hæfni fólksins okkar. Til að ná árangri í þessari stöðu leitum við eftir aðila sem kann að greina tækifærin og grípa þau, hefur gaman af því að vinna í skilvirku teymi þvert á deildir og landamæri og er opinn fyrir nýjum áskorunum.
Að auki erum við að leitast eftir:
- Menntun sem nýtist í starfi: tækni- eða iðnfræði, iðnmenntun, verkfræði eða önnur sambærileg menntun.
- Reynsla af verklegum framkvæmdum og eftirlitsstörfum er kostur.
- Reynsla af framkvæmdamælingum er kostur.
- Þekking á íslenskum byggingarreglugerðum og stöðlum er kostur.
- Kostur að hafa byggingarstjóraréttindi.
- Almenn tölvuþekking
- Góð samskiptafærni
- Geta til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi
- Íslenskukunnátta í tali og rituðu máli
- Bílpróf
Við bjóðum líka uppá
- Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika í bland við vinnu á starfsstöð
- Öflugt mötuneyti með morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrkir
- Starfsmannafélag með fjölbreyttum deildum og viðburðum
- Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi
- Starfsþróunarmöguleikar innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræn þjálfun hjá COWI Academy
- Árlegt heilsufarsmat
Íslenska
Enska










