
BL ehf.
BL er eitt stærsta og elsta bílaþjónustufyrirtæki landsins og nær saga okkar allt aftur til ársins 1954.
Á þeim tíma hafa bílar og bílaframleiðsla breyst gríðarlega og sjaldan hefur þróunin verið jafn spennandi og einmitt núna þegar nýir möguleikar eru að opnast til að koma okkur hratt og örugglega milli staða í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna.
Á fimm starfsstöðvum rekum við umboð fyrir fólks- og atvinnubíla frá 12 framleiðendum og starfrækjum vottuð þjónustu-, málningar- og réttingaverkstæði sem eru ein þau fullkomnustu á landinu. Við leggjum áherslu á góða starfsaðstöðu og starfsanda og hjá okkur er öflugt starfsmannafélag. BL er með jafnlaunavottun og við erum fyrirmyndarfyrirtæki VR.
Hvort sem þú leitar að tímabundnu starfi eða hyggur á fagmenntun til framtíðar þá færðu frábært tækifæri hjá BL til að kynnast nýjustu tækni og öðlast reynslu í einhverri mikilvægustu og fjölbreyttustu atvinnugrein samtímans í návígi við marga af fullkomnustu og glæsilegustu bílum heims.

Sérfræðingur í fræðslu og þjálfun
Við leitum að öflugum sérfræðingi í fræðslu og þjálfun sem hefur brennandi áhuga á bílum, tækni og miðlun þekkingar.
Starfið snýst um að efla þekkingu og færni starfsfólks BL, styðja við tæknimenn þjónustusviðs og tryggja að mismunandi teymi þjónustusviðs séu ávallt með nýjustu upplýsingar frá framleiðendum.
Þú verður lykilaðili í að byggja upp faglega þjálfun, styðja við úrlausn tæknilegra mála og stuðla að framúrskarandi þjónustu hjá BL.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja og fylgja eftir þjálfun vegna nýrra bíla, nýrrar tækni og krafna framleiðenda
- Miðla þekkingu og fræðsluefni til starfsfólks á skýran og hagnýtan hátt
- Halda utan um rafræna fræðslu og tryggja virka þátttöku starfsfólks
- Styðja við tæknimenn, verkstjóra og þjónustusvið í flóknari tæknimálum
- Taka þátt í þjálfun nýs starfsfólks og nema í vinnustaðanámi
- Sækja upplýsingar og þjálfun frá framleiðendum og koma þeim áfram innan BL
- Stuðla að aukinni þekkingu, fagmennsku og samræmdum vinnubrögðum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifvélavirkjun er skilyrði
- Meistarapróf í bifvélavirkjun er kostur
- Góð þekking á bílum, bilanagreiningu og nýrri tækni
- Góð samskiptahæfni og ánægja af því að miðla þekkingu
- Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði, þjónustulund og lausnamiðuð nálgun
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Almenn tölvufærni, t.d. PowerPoint, Excel og Outlook
- Ökuréttindi
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af nýjum bílum
- Afsláttarkjör af aukahlutum, varahlutum, þjónustu ofl.
- Íþróttastyrkur
- Mötuneyti með heitum mat
- Afsláttur hjá systurfélögum BL;
- Hleðslu og hleðslustöðvum Ísorku
- Leiga á bílum hjá Hertz
Auglýsing birt27. maí 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sævarhöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiBifvélavirkjunBilanagreiningFagmennskaFramkoma/FyrirlestarFrumkvæðiKennslaMeistarapróf í iðngreinNákvæmniÖkuréttindiSkipulagSveinspróf
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bifvélavirki óskast til DS lausna, Hafnafirði.
DS lausnir

Mechanic - Full time
Rent.is

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Viðgerðarmaður á Selfossi
Steypustöðin

Bifvélavirki/Vélvirki
Vélabær ehf

Næturvaktarfólk í viðhaldsteymi
First Water

Verkstæðismóttaka
BSB og Synir

Bifvélavirki
BSB og Synir

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Höfuðborgarsvæði
Frumherji hf

Sölumaður vara- og aukahlutaverslun
ÍSBAND verkstæði og varahlutir

Bifvélavirki
Toyota

Bifvélavirki / Automotive mechanic to join our team
Dekkjalíf ehf.