Sorpa bs.
Sorpa bs.
Sorpa bs.

Sérfræðingur í fjárhagsgreiningum

SORPA leitar að framsýnum og lausnamiðuðum einstaklingi í hlutverk sérfræðings í fjárhagsgreiningum. Við leitum að einstaklingi sem hugsar gagnadrifið, vinnur vel með öðrum og hefur brennandi áhuga á að skapa virði og styðja við rekstrarárangur í fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Safna, greina og túlka viðskiptagögn til að styðja við stefnumótun og ákvarðanatöku
  • Skilgreina lykilárangursmælikvarða (KPI) og hanna regluleg skýrslugerðarkerfi
  • Vinna með með greiningarverkfærum og þróa viðskiptagreiningar með Power BI
  • Veita innsýn í markaðsgögn, viðskiptavinahegðun og ný tækifæri til vöru- og þjónustuþróunar
  • Taka þátt í umbótaverkefnum, sjálfvirknivæðingu og stafrænni umbreytingu
  • Framkvæma arðsemismöt á allar fjárfestingarákvarðanir samlagsins
  • Vinna náið með rekstri, upplýsingatækni, fjármálum og markaðsmálum
  • Leiða áfram áætlunarvinnu SORPU á hverjum tíma
  • Vinna með næstu yfirmönnum að áframhaldandi þróun starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í viðskiptafræði, hagfræði, tölfræði, verkfræði, upplýsingatækni eða tengdu sviði
  • A.m.k. 2–3 ára reynsla af greiningarstörfum, helst í viðskiptaumhverfi
  • Hafa góða tölvufærni, þ.m.t. á Microsoft 365, SharePoint, Teams, SQL, PowerBI og Business Central
  • Reynsla af að vinna við áætlunargerð
  • Glöggt auga við meðhöndlun talna og nákvæmni
  • Góð greiningarhæfni og hæfni til að miðla niðurstöðum skýrt og skilmerkilega
  • Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Áhugi á nýtingu gagna til að bæta árangur og upplifun viðskiptavina
  • Búa yfir góðri hæfni í samstarfi og mannlegum samskiptum
  • Hafa gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt10. júní 2025
Umsóknarfrestur23. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 1, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SharePointPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar