
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli er við Norðurhóla 1 á Selfossi. Hann tók til starfa í ágúst 2004 með 1.- 4. bekk en er nú heildstæður skóli með bekkjardeildir frá 1.- 10. bekk. Sérdeild Suðurlands er deild innan Sunnulækjarskóla og í daglegu tali nefnd Setrið.
Sunnulækjarskóli er skóli sem lærir. Skólinn er samfélag þar sem allir vinna saman að því að læra, þroskast og taka framförum. Við viljum byggja upp sterkt lærdómssamfélag nemenda og starfsmanna og leggjum áherslu á metnaðarfullt skólastarf þar sem virðing og traust ríkir. Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans er mjög mikilvæg.
Nemendur eru settir í öndvegi og við viljum rækta með þeim áræði, þrek og þor til að takast á við þau fjölmörgu og fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra á lífsleiðinni. Við viljum að nemendum og starfsfólki líði vel í skólanum og gangi glaðir til starfa.
Í Sunnulækjarskóla vinna allir í teymum. Þannig nýtum við styrkleika og margbreytileika hópsins betur og margar hendur vinna létt verk. Umsjónarkennarar innan árgangs mynda kennarateymi sem og faggreinakennarar, list- og verkgreinakennarar, íþróttakennarar og sérkennarar ásamt þroska- og iðjuþjálfum. Kennarateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp sterkt lærdómssamfélag í skólanum.
Einkunnarorð skólans eru GLEÐI - VINÁTTA - FRELSI.

Sérfræðingur á sviði uppeldis- og menntamála
Auglýst er 80-100% staða reynslumikils einstaklings á sviði uppelsis- og menntamála til að sinna verkefni á miðstigi skólans.
Starfsmaður tilheyrir stoðþjónustuteymi skólans og starfar með fagteymi. Markmið starfsins er að auka sjálfstæði og færni nemenda í daglegum athöfnum með beinni íhlutun og vinnu með nemanda.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við stjórnendur skólans og skólaþjónustu.
- Vinnur að einstaklingsáætlun í samráði/samstarfi við stjórnendur, skólaþjónustu og aðra eftir því sem við á.
- Skipuleggur /útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði skólamála s.s uppeldis- og menntunarfræða eða kennslufræða, þroskaþjálfafræða, iðjuþjálfunar, atferlismótunar eða annara greina sem nýtist í sértækri vinnu með börnum.
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur26. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Seljaskóla
Seljaskóli

Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot
Garðabær

Sumarstarf í leikskólanum Núp
Sumarstörf - Kópavogsbær

Leikskólakennari/leiðbeinandi Suðurborg
Leikskólinn Suðurborg

Aðstoðarleikskólastjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Atferlisfræðingur, þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða starfsmaður með sálfræðimenntun
Leikskólinn Suðurborg

Menntasvið - Leikskólafulltrúi
Reykjanesbær

Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Hefur þú brennandi áhuga á velferðar- og heilbrigðismálum?
Tryggingastofnun

Vinna með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli