Verðbréfamiðstöð Íslands hf.
Verðbréfamiðstöð Íslands hf.
Verðbréfamiðstöð Íslands hf.

Sérfræðingur á rekstrar- og uppgjörssvið Verðbréfamiðstöðvar Íslands

Verðbréfamiðstöð Íslands hf. leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi á rekstrar- og uppgjörssvið.

Verðbréfamiðstöð Íslands hf. þjónustar og styður útgefendur og fjárfesta með rafrænni eignarskráningu verðbréfa og leggur áherslu á skilvirka og örugga ferla samhliða öflugri þjónustu við fjárfesta og eigendur verðbréfa. Hjá Verðbréfamiðstöð Íslands starfar samhentur hópur sérfræðinga sem leggur áherslu á fagmennsku, nákvæmni og áreiðanleika.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti og upplýsingagjöf við útgefendur og markaðsaðila
  • Eftirlit með daglegu uppgjöri
  • Umsjón með skráningu ferla og vinnulýsinga er tengjast verðbréfaviðskiptakerfi
  • Þátttaka í innleiðingu og þróun þjónustu VBM
  • Regluleg yfirferð ferla og gátlista
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Marktæk þekking og reynsla af verðbréfauppgjöri, bakvinnslu eða sambærilegum störfum
  • Gott vald í mæltu og rituðu máli á íslensku
  • Góð enskukunnátta er skilyrði
  • Góð tölvukunnátta nauðsynleg
  • Skipulagshæfni og samskiptafærni

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Örn Davíðsson framkvæmdastjóri,  [email protected].

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests. 

Vinnustaðurinn Verðbréfamiðstöð Íslands

Verðbréfamiðstöð Íslands er samheldinn vinnustaður þar sem ríkir góð fyrirtækjamenning í traustu og jákvæðu starfsumhverfi. Hjá okkur skiptir máli að hver og einn fái að njóta sín, hafa áhrif og upplifa að framlag sitt skipti máli.

Við leggjum áherslu á sveigjanleika og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Við vinnum náið saman, styðjum hvert annað og leggjum metnað í fagmennsku og góð samskipti.

Upplýsingar um Verðbréfamiðstöð Íslands hf. má finna á  https://www.vbm.is/

Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar