Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic

Reliability & Safety Analyst

Air Atlanta leitar að öflugum aðila til að ganga til liðs við verkfræðideild félagsins í starf Reliability & Safety Analyst og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar.

Í verkfræðideildinni starfar samheldinn hópur sem sinnir eftirliti með viðhaldi, áreiðanleika og lofthæfi flugvélaflotans í samráði við flugvélaframleiðendur og aðra samstarfsaðila. Í dag er Air Atlanta með Boeing 747-400 og Boeing 777-200/300 í rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og viðhald áreiðanleikaáætlana (Reliability Programs) fyrir flugvélaflota félagsins
  • Gerð og greining mánaðarlegra áreiðanleikaskýrslna
  • Eftirlit og eftirfylgni með endurteknum viðhaldsatriðum og frávikum
  • Greining gagna og eftirfylgni með viðvörunum og frávikum sem koma fram í áreiðanleikakerfi
  • Undirbúningur, boðun og umsjón mánaðarlegra áreiðanleikafunda
  • Söfnun og miðlun tæknilegra gagna vegna öryggiseftirlits og Safety Review Board funda
  • Samræming og eftirfylgni vegna tæknilegra atvikaskýrslna (occurrence reports)
  • Yfirferð áhættumats og mat á þörf fyrir mótvægisaðgerðir vegna tæknilegra atvika
  • Eftirfylgni með innleiðingu mótvægisaðgerða og úrlausn tæknilegra atvika
  • Náið samstarf við Safety & Compliance deild félagsins
  • Önnur verkefni samkvæmt ákvörðun Manager Engineering
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða starfsreynsla á sviði flugvirkjunar, verkfræði eða sambærilegur tæknilegur bakgrunnur
  • Reynsla af verkfræði-, viðhalds- eða skipulagsstörfum (engineering/planning) innan flugrekstrar er kostur
  • Þekking og hæfni til að túlka viðhaldskröfur og yfirfæra þær á viðhaldsverkefni
  • Góð þekking á EASA Part-M, sérstaklega M.A.301 og M.A.302 er kostur 
  • Góður skilningur á hættugreiningu, áhættumati og áhættuminnkandi aðgerðum
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta og færni í meðhöndlun og greiningu gagna
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Sterk öryggisvitund og góð samskipta- og samstarfshæfni 
Auglýsing birt18. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar