Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Rekstrarstjóri

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) auglýsir eftir rekstrarstjóra teymis þróunar og rekstrar hjá stofnununni. Um er að ræða krefjandi og spennandi stjórnunar- og leiðtogastarf í nýju skipulagi stofnunarinnar. Rekstrarstjóri situr í stjórnendateymi og framkvæmdaráði GEV og er ritari ráðsins.

Leitað er að metnaðarfullum, jákvæðum og öguðum einstaklingi sem býr yfir þjónustuhugsun, sem er tilbúinn til að vera í leiðandi hlutverki í teymi þróunar og rekstrar hjá stofnunarinnar þar sem reynir á skipulag, fagmennsku, vinnugleði, frumkvæði og samstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsjón, yfirsýn og stjórnun verkefna í teymi þróunar og rekstrar.
  • Ábyrgð á stoðþjónustu teymisins, skráningu erinda, skjalavörslu, skráningu ferla, gögnum og tölfræði og samstarfi við birgja.
  • Umsjón með daglegum rekstri og mannauðsmálum, þ.m.t., launavinnslu, nýliðaþjálfun og fræðslustarfi.
  • Forysta um straumlínustjórnun og mótun vinnuferla.
  • Ábyrgð á uppbyggingu gæðahandbókar og umsjón við skráningu á verklagsreglum.
  • Umsjón með gæðamálum á sviði velferðarmála í samráði við forstjóra.
  • Eftirfylgni verkefna á starfsáætlun forstjóra, m.a. á sviði gæða- og upplýsingatæknimála, mannauðsmála og rekstrar.
  • Innleiðing tæknilausna og eftirfylgni nýjunga og umbóta, m.a. á sviði gervigreindar.
  • Tengiliður við rekstraraðila upplýsingtæknikerfa, húsnæðis og birgja.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Farsæl reynsla af þróun og innleiðingu ferla og umbóta.
  • Reynsla á sviði rekstrar og mannauðmála.
  • Hæfni í greiningu, túlkun og framsetningu gagna.
  • Þekking og reynsla á sviði velferðarmála.
  • Þekking og reynsla á sviði stjórnsýslu.
  • Frumkvæði og umbótavilji.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvæðni og  samstarfshæfni.
  • Sjálfstæði í starfi og ögun í  vinnubrögðum.
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti.
Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur23. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar