

Reiðhjólaviðgerðarmaður – Útisport Glerártorgi
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum reiðhjólaviðgerðarmanni til starfa á verkstæðinu okkar í Útisport á Glerártorgi.
Ef þú hefur reynslu af reiðhjólaviðgerðum eða annarri viðgerðarvinnu er það mikill kostur. Við leitum að einstaklingi sem vinnur af nákvæmni, hefur góða þjónustulund og nýtur þess að takast á við fjölbreytt verkefni.
Um er að ræða fullt starf. Vinnutími er kl. 10:00–18:00 virka daga og vinna á laugardögum samkvæmt samkomulagi.
Ef þú vilt starfa í líflegu og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem hjólreiðar eru í aðalhlutverki og metnaður fyrir góðri þjónustu skiptir máli, þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni
- Viðgerðir og þjónusta á reiðhjólum og rafmagnshjólum.
- Samsetning reiðhjóla.
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini.
- Lagerstörf og almennur frágangur.
Við leitum að einstaklingi sem
- Er duglegur, skipulagður og lausnamiðaður.
- Hefur reynslu af reiðhjólaviðgerðum eða sambærilegri viðgerðarvinnu.
- Hefur góða þjónustulund og samskiptahæfni.
- Getur unnið bæði sjálfstætt og í teymi.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um með því að senda umsókn og ferilskrá í gegnum Alfred.is fyrir 19. júlí.
Öllum umsóknum verður svarað.
Íslenska










