atNorth
atNorth
atNorth

RAFVIRKI / RAFMANGSSÉRFRÆÐINGUR

atNorth heldur áfram að stækka starfsemi sína á Akureyri og leitar að kraftmiklum reynslubolta í starf í rafvirkja/rafmagnssérfæðings.


Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Starfið hentar öllum kynjum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð og stýring á rafmagnskerfum og búnaði
  • Tæknileg sérfræðiaðstoð við framkvæmdir, breytingar og daglegan rekstur gagnaversins
  • Þátttaka í þróun og innleiðingu öryggisáætlana og gæðaeftirlits
  • Ábyrgð á skipulagi viðhalds og bilanagreininga
  • Framkvæmd og stuðningur við fyrirbyggjandi viðhald, viðgerðir, uppsetningu og gangsetningu rafmagnskerfa
  • Tryggja að vinnuumhverfi og verklag séu í samræmi við öryggis- og gæðastaðla
  • Þátttaka í skýrslu- og ætlanagerð
  • Leiða umbótaverkefni og stöðuga þróun ásamt því að þjálfa og leiðbeina starfsfólki
  • Þjónusta og samskipti við viðskiptavini
  • Önnur verkefni í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í rafvirkjun, önnur tengd framhaldsmenntun kostur
  • Þekking og reynsla af lágspennu
  • Víðtæk þekking á virkni rafkerfa og búnaðar
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á teymi
  • Sjálfstæð skipulögð vinnubrögð og frumkvæði
  • Umbótahugarfar, örygggisvitund og þjónustulund
  • Góð kunnátta í ensku, bæði skrifleg og töluð
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi

Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru

  • Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
  • Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
  • Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
  • Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Auglýsing birt28. október 2025
Umsóknarfrestur14. nóvember 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Rangárvellir 150122, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar