Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál

Rafvirki í háspennu / High Voltage Electrician

Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum og jákvæðum rafiðnaðarmanni í starf rafvirkja í háspennu. Teymið sinnir daglegum rekstri rafveitu, annast viðhald há- og lágspennubúnaðar, eftirlitsferðum, ásamt prófunum á varnarbúnaði, rofum, spennum, öryggisbúnaði og örðru sem tengist rekstri rafveitu. Rafvirki rafveitu er á bakvakt reglulega eina viku í senn. Alcoa Fjarðaál er stærsti raforkunotandi á Íslandi og rafveitan er fjölbreyttur og krefjandi starfsvettvangur þar sem öryggismál eru ávallt í forgrunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsjón með rekstri rafveitu
  • Útlæsing háspennubúnaðar
  • Uppsetning öruggs vinnusvæðis háspennu
  • Viðbrögð við rekstrartruflunum
  • Prófun á öryggisbúnaði
  • Meðhöndlun og greining olíusýna
  • Almenn rafvirkjastörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun
  • Reynsla í starfi æskileg
  • Reynsla af rekstri og viðhaldi háspennubúnaðar er kostur
  • Sterk öryggis- og gæðavitund
  • Lipurð í samskiptum og jákvætt viðmót
  • Frumkvæði, sjálfstæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi

Gott mötuneyti 

Rútuferðir til og frá vinnu

Velferðaþjónusta

Auglýsing birt22. mars 2026
Umsóknarfrestur5. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hraun 1, 731 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Rafvirkjun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar