Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafi í kvöld- og helgarvinnu á meðferðarheimili á höfuðborgarsvæðinu

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum? Barna- og fjölskyldustofa óskar eftir að ráða ráðgjafa á Blönduhlíð, meðferðarheimili fyrir unglinga sem starfrækt er tímabundið í húsnæði Vogs. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs, í eina 50% stöðu ráðgjafa í vaktavinnu um kvöld og helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umönnun og gæsla unglinga.
  • Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í samvinnu við deildarstjóra, verkefnastjóra, sálfræðinga og forstöðumann.
  • Meðferðarvinna og vinna að tómstundastarfi með unglingum.
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
  • Vinna eftir verklagsreglum.
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. í  meðferðar-, tómstunda-, íþróttastarfi eða öryggisgæslu.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
  • Gild ökuréttindi.
  • Einnig er lögð áhersla á aðra persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.
Auglýsing birt27. ágúst 2025
Umsóknarfrestur10. september 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar