

Öryggisvörður / Umsjónarmaður Bílastæðahúss
Green Parking leitar að ábyrgðarfullum starfsmanni með góða þjónustulund til að sinna daglegri umsjón og þjónustu í bílastæðahúsi við Hörpu.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu, daglegt eftirlit og að tryggja að rekstur bílastæðahússins gangi snurðulaust fyrir sig. Um er að ræða fullt starf til framtíðar, en vinnutíminn er breytilegur vegna eðli viðburða og notkunar á svæðinu. Ekki er einungis um dagvinnu að ræða.
Helstu verkefni
- Þjónusta og aðstoð við viðskiptavini.
- Umsjón með daglegum rekstri bílastæðahúss.
- Eftirlit með greiðsluvélum og öðrum búnaði.
- Svörun síma og tölvupósta.
- Aðstoð vegna greiðslna
- Umsjón með mánaðaráskriftum.
- Létt þrif og almenn umhirða bílastæðahússins.
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur góða þjónustulund og á auðvelt með mannleg samskipti.
- Hefur góða íslenskukunnáttu.
- Er sjálfstæður, ábyrgur og lausnamiðaður.
- Er sveigjanlegur í starfi.
- Er í góðu líkamlegu ástandi
- Getur framvísað hreinu sakavottorði.
- Hefur haldbæra reynslu af þjónustustörfum
Green Parking ehf er framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í nútíma bílastæðalausnum fyrir rekstur bílastæða í eigin nafni eða m.a fyrir fyrirtæki, opinberar stofnanir og sveitarfélög.
Starfsstöð er í bílastæðahúsinu við Hörpu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Ef þú hefur gaman af því að veita framúrskarandi þjónustu og vilt vinna í fjölbreyttu umhverfi, hvetjum við þig til að sækja um.
Fyrirspurnum um starfið svarar mannauðsdeild: [email protected]
Íslenska


