Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun

Nýdoktor í hafeðlisfræði

Hafrannsóknastofnun leitar að nýdoktor í hafeðlisfræði í fullt starf á Umhverfissvið Hafrannsóknastofnunar. Verkefnið felst í því að vinna úr langtímamælingum með straumlögnum og beinum haffræðilegum athugunum til þess að varpa ljósi á breytileika í umhverfisástandi sjávar og yfirflæðis í Grænlandssundi (Denmark Strait Overflow) sem er mikilvægur hluti veltihringrásarinnar í Atlantshafi (Atlantic Meridional Overturning Circulation, AMOC). Staðan er fjármögnuð til 20 mánaða en verða til skoðunar möguleikar á framlengingu á verkefnatímanum.

Umsækjandi mun starfa náið með sérfræðingateymi sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum á sviði hafeðlisfræði, auk þess að starfa náið með innlendum og alþjóðlegum samstarfsaðilum hjá Háskóla Íslands, Dönsku veðurststofunni (Danmarks Meteorologiske Institut) og Háskólanum í Hamborg (Universität Hamburg).

Starfið er einnig auglýst á vefsvæði Research Gate, POSTDOCTORAL FELLOW IN PHYSICAL OCEANOGRAPHY at Marine and Freshwater Research Institute in Hafnarfjörður, ICELAND

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppfæra og greina tímaraðir frá straummælingalögnum í Grænlandssundi.

  • Tengja niðurstöður við mælingar á ástandi sjávar, endurmetin gögn (reanalysis) og gögn frá loftslagslíkönum.

  • Þátttaka í rannsóknarleiðangri á Grænlandssundi.

  • Þátttaka í alþjóðlegum ráðstefnum.

  • Vinna í samstarfi við haffræðiteymi Hafrannsóknastofnunar og alþjóðlega samstarfsaðila.

  • Rannsóknarheimsókn til samstarfsaðila hjá Dönsku veðurstofunni.

  • Skrifa og birta vísindagrein um breytingar á umhverfisástandi sjávar og yfirflæðisins í Grænlandssundi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Doktorsgráða í hafeðlisfræði eða skyldum greinum.

  • Reynsla og hæfni í forritun í Matlab og/eða Python.

  • Reynsla af greiningu á haffræðilegum gögnum, sem og líkanagögnum.

  • Fyrri birtingar í ritrýndum vísindatímaritum.

  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.

  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.

  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

Fríðindi í starfi
  • Aðgangur að mötuneyti
  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Góð starfsaðstaða 
Auglýsing birt15. janúar 2026
Umsóknarfrestur14. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fornubúðir 5, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar