Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings

Náms- og starfsráðgjafi

Staða náms- og starfsráðgjafa hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings er laus til umsóknar.

Á þjónsutusvæði Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings eru starfræktir 6 grunnskólar með samanlagt rúmlega 450 nemendur. Miðað er við að tveir náms- og starfsráðgjafar skipti með sér störfum í þessum skólum. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í þverfaglegu samstarfi, er tilbúinn að starfa í fleiri en einum grunnskóla og þróa og laga starfið að þeim aðstæðum. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Náms- og starfsráðgjafi sinnir fjölbreyttu starfi í samvinnu við skólaþjónustu, skólastjórn-endur og annað starfsfólk skólanna. Meðal verkefna er að skipuleggja náms- og starfs-fræðslu, veita upplýsingar um nám og störf, leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi, veita nemendum persónulega ráðgjöf, sinna forvarnarstarfi, vinna í eineltismálum, veita foreldrum ráðgjöf, undirbúa flutning nemenda milli skólastiga o.fl.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Menntun í náms- og starfsráðgjöf með tilheyrandi starfsréttindum

·       Reynsla af náms- og starfsráðgjöf í grunnskóla er kostur

·       Þekking og reynsla af ráðgjöf og stuðning við nemendur með fjölbreyttar þarfir

·       Hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og samstarfsvilji

·       Þekking og reynsla af forvarnarstarfi

·       Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi

·       Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur6. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugarás 167381, 801 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar