
MSS leitar að verkefnastjóra
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan verkefnastjóra til starfa. Starfið felst í að skipuleggja, þróa og halda utan um nám og námskeið í símenntun. Verkefnastjórinn starfar sem hluti af samhentu teymi og vinnur náið með kennurum, námsráðgjöfum og stjórnendum.
Við leitum að einstaklingi sem:
- er jákvæður og lausnamiðaður,
- á auðvelt með að vinna í teymi,
- nýtur þess að vinna í fjölbreyttu og líflegu umhverfi.
- Skipulagning og framkvæmd náms og námskeiða
- Þróun og utanumhald fjarnáms
- Samstarf við fyrirtæki og stofnanir á svæðinu
- Önnur verkefni sem tengjast starfsemi MSS
Hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Góð tölvukunnátta og vilji til að tileinka sér nýja tækni
- Færni í teymisvinnu
Kostir:
- ef umsækjandi hefur reynslu af verkefnastjórnun og/eða kennslu í fullorðinsfræðslu
- að hafa þekkingu á atvinnulífi og menntunarþörfum svæðisins













