Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Fulltrúi í evrópsku samstarfsverkefni um krabbameinsskimanir

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða verkefnastjóra hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, SKS, sem mun halda utan um stórt samevrópskt verkefni í tengslum við krabbameinsskimanir. Viðkomandi mun vinna náið að þessu verkefni með yfirlækni SKS.

SKS fer með skipulag og utanumhald lýðgrundaðra skimana fyrir krabbameinum í brjóstum, leghálsi og ristli og endaþarmi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða ótímabundið 50-70% starf í dagvinnu.

Nánari upplýsingar um SKS má finna á www.skimanir.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fulltrúi SKS í evrópusamstarfsverkefni um krabbameinsskimanir og heldur utan um þátttöku teymisins
  • Þróun og innleiðing verkferla í samvinnu við yfirlækni SKS
  • Samskipti við aðra fagaðila og stofnanir innanlands og erlendis
  • Gagnavinnsla og skýrslugerð vegna gæðaeftirlits
  • Fræðsla og önnur tilfallandi verkefni sem falin eru af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunnnám BA- eða BS-gráða
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Framhaldsmenntun í verkefnastjórnun eða lýðheilsuvísindum kostur
  • Þekking og reynsla innan heilbrigðisþjónustu æskilegt
  • Reynsla af erlendu samstarfi kostur
  • Mjög góð skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslensku og -enskukunnátta skilyrði, bæði í rituðu og töluðu máli
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsueflingarstyrkur
Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur11. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Miðhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar