Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta

Matráður/Matreiðslumaður í eldhúsi Hámu hjá Félagsstofnun Stúdenta

Veitingasala Félagsstofnunar Stúdenta sér um veitingarekstur á háskólasvæðinu undir merkinu Háma og Kaffistofur Stúdenta.

Við leitum að matráði/matreiðslumanni til að starfa í eldhúsi Hámu. Viðkomandi sér um að undirbúa, elda og framreiða mat í samvinnu við yfirkokk Hámu og annað starfsfólk eldhúss Hámu.

Matráður/Matreiðslumaður í eldhúsi Hámu sér til þess að vinnslurými sé snyrtilegt og unnið sé eftir lögum og reglum Heilbrigðiseftirlitsins og í samræmi við HACCP gæðakerfi.

Starfsfólk Hámu tekur þátt í styttingu vinnuvikunnar.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur, matseld og framreiðsla á heitum mat og öðrum réttum samkvæmt matseðli.
  • Ábyrgð á að vinnusvæði sé ávallt hreint, snyrtilegt og vel skipulagt.
  • Tryggja að unnið sé samkvæmt reglum heilbrigðiseftirlits og í samræmi við HACCP gæðakerfi.
  • Veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og faglegt viðmót.
  • Viðhalda góðum samskiptum og stuðla að jákvæðu samstarfi við samstarfsfólk og yfirmenn.
  • Fylgjast með birgðastöðu og sjá um pantanir á vörum og hráefni eftir þörfum í samráði við yfirkokk.
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af því að starfa í eldhúsi/mötuneyti
  • Rík þjónustulund
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi
  • Reglusemi
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi

Starfsfólk FS nýtur ýmissa fríðinda, t.d. í formi íþróttastyrks og afslátta hjá Bóksölu Stúdenta, Stúdentakjallaranum og Hámu. 

FS er með virkt starfsmannafélag sem skipuleggur ýmsa viðburði, þar á meðal árshátíðarferðir erlendis annað hvert ár.

Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sæmundargata 4-10 4R, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.FramreiðslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar