

Matráður / aðstoð í eldhúsi
Vilt þú elda í sumar í einu besta mötuneyti landsins!
Sýn leitar að metnaðarfullum matráði sem hefur ástríðu fyrir matargerð og vill vinna við framúrskarandi aðstæður. Viðkomandi mun vinna náið með starfsfólki veitingastaðarins BESTA Bistro sem staðsettur er á efstu hæð í höfuðstöðvum Sýnar. Um er að ræða tímabundið starf frá 1. júní til 14.ágúst 2026.
Á BESTA Bistro er boðið upp á morgunverð, hádegisverð og síðdegishressingu. Mikil áhersla er lögð á að bjóða upp á góðan, hollan og fjölbreyttan mat. Viðkomandi mun aðstoða í eldhúsi t.d. við framsetningu morgunverðar, undirbúning og eldun hádegisverðar, frágangur og flest önnur tilfallandi verkefni sem tengjast eldhúsinu.
Vinnutími er frá 7.30 - 15.30 alla virka daga.
Ef þú vilt taka þátt í að auka ánægju starfsfólks Sýnar og koma að mótun og þróun á skemmtilegum veitingastað þá bíðum við spennt eftir að heyra frá þér.
- Matreiðsla
- Framsetning
- Frágangur
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast eldhúsinu
- Ástríða fyrir matargerð
- Reynsla af sambærilegu starfi er nauðsynleg
- Góðir samskiptahæfileikar og mikil þjónustulund
- Stundvísi og áreiðanleiki











