
Markaðs- og fjölmenningarfulltrúi
Mýrdalshreppur óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf markaðs- og fjölmenningarfulltrúa.
Um fjölbreytt og lifandi framtíðarstarf er að ræða sem krefst góðrar færni á ýmsum sviðum.
Starfshlutfall er 100% og heyrir starfið undir sveitarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með markaðs-, kynningar- og ímyndarstarf Mýrdalshrepps
- Umsjón með heimasíðu, samfélagsmiðlum og annarri upplýsingamiðlun sveitarfélagsins
- Gerð og miðlun frétta og kynningarefnis um þjónustu, verkefni og viðburði sveitarfélagsins
- Samstarf við fyrirtæki, félagasamtök og aðra hagaðila um kynningu á samfélaginu og þátttaka í viðburðum og samfélagsverkefnum
- Umsjón og eftirfylgni með fjölmenningarmálum sveitarfélagsins með áherslu á virka þátttöku allra íbúa
- Að vinna að bættu aðgengi að upplýsingum og þjónustu sveitarfélagsins fyrir íbúa óháð tungumáli og uppruna
- Samræma verkefni sem styðja við móttöku nýrra íbúa, íslenskukennslu og samfélagsþátttöku
- Samstarf við skóla, stofnanir, atvinnurekendur, félagasamtök og aðra aðila um fjölmenningarverkefni og samfélagslega þátttöku
- Ráðgjöf, þróunarverkefni, styrkumsóknir og önnur verkefni sem falla að starfssviðinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
- Reynsla af markaðs- og kynningarstarfi er kostur
- Reynsla af fjölmenningarstarfi, samfélagsverkefnum eða verkefnastjórnun er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný stafræn verkfæri
- Mjög góð færni til samstarf og samskipta
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran, aðgengilegan og áhugaverðan hátt
- Jákvætt viðmót og áhugi á samfélagsþróun og fjölbreyttu mannlífi
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Smiðjuvegur 7
Starfstegund
Hæfni
MarkaðsmálSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Cinematic Artist
Fenris Creations

Marketing & Fundraising Executive
The Beluga Operating Company ehf.

Við leitum að markaðsfulltrúa!
S4S

Samfélagsmiðla- og markaðssérfræðingur hjá Hagkaup
Hagkaup

Sérfræðingur // Stafræn markaðssetning
MARS MEDIA

Séní í stafrænum vexti og vef
Nova

Markaðssérfræðingur
ION Hotels ehf