
Styrkás
Styrkás hf. er rekstrarfélag sem var stofnað árið 2022. Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni og HRT þjónusta eru dótturfélög Styrkás og saman mynda þessi félög samstæðu Styrkás. Það er stefna félagsins að verða leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Markmið Styrkáss er að byggja ofan á sterkar stoðir með innri og ytri vexti kjarnasviða, sem eru orka og efnavara, tæki og búnaður, eignaumsýsla og leigustarfsemi og umhverfisþjónusta og iðnaður. Styrkás stefnir á skráningu í kauphöll á öðrum ársfjórðungi 2027. Lögð er áhersla á að byggja upp hvetjandi vinnustaðamenningu þar sem starfsfólk fær tækifæri til að þróast og njóta góðs aðbúnaðar. gildi samstæðunnar eru frumkvæði, samvinna og vera tilbúin í breytingar. Þau endurspeglast í daglegu starfsfólks og hvetjum við til samstarfs þvert á félög samstæðunnar, því þá vitum við að við náum meiru fram sem ein heild.

Mannauðsráðgjafi
Styrkás leitar að mannauðráðgjafa sem mun gegna lykilhlutverki í þróun mannauðsmála innan samstæðunnar. Mannauðsráðgjafi er hluti af mannauðsteymi samstæðunnar og vinnur með dótturfélögunum að því að þróa áfram hæfni mannauðs, skilvirkt ferli og þá fyrirtækjamenningu sem styðja við famtíðarstefnu og árangur þeirra. Mannauðsráðgjafinn styður stjórnendur og starfsfólk í samstæðunni í mannauðstegndum málum ásamt því að þróa, skipuleggja og innleiða fræðslu og þjálfun innan samstæðunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móta og uppfæra heildstæða fræðslustefnu
- Móta árlega fræðsluáætlun með áherslu á öryggi starfsfólks
- Umsjón með ráðningum, starfsþróun og starfslokaferlum
- Úrvinnsla vinnustaðamælinga og vinna að úrbótum í samstarfi við stjórnendur
- Almenn mannauðsþjónusta, stuðningur við starfsfólk og stjórnendur
- Umbótaverkefni tengd stafrænum lausnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af mannauðsmálum
- Reynsla af þróun og framkvæmd fræðslu og þjálfunar
- Þekking í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf og kjarasamningum er kostur
- Sterk samskiptafærni
- Sjálfstæð vinnubrögð með gott skipulag og hæfni til að stjórna mörgum verkefnum samtímis
- Hæfni til að vinna úr gögnum og skýrslugjöf
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun við þróun ferla og verklags
Fríðindi í starfi
Niðurgreiddur hádegisverður
Afsláttur af vörum í samstæðunni
Íþróttastyrkur
Auglýsing birt21. maí 2026
Umsóknarfrestur4. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 1, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



