Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Reykjanesbæ - þjónusta og ráðgjöf

Vilt þú hafa áhrif á heilsu, vellíðan og aukin lífsgæði viðskiptavina?

Lyfja Reykjanesbæ leitar að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í afgreiðslu og sölu. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.

Hlutverk og ábyrgð

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Akstur með heimsendingar úr apóteki

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Starfið

Um hlutastarf er að ræða og unnið er virka daga á dagvöktum samkvæmt vaktaplani. Möguleiki er á helgarvöktum.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri. Við hvetjum pólskumælandi einstaklinga til að sækja um.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólveig Óskarsdóttir, lyfsali Lyfju Reykjanesbæ í síma 421-6565 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt11. desember 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Krossmói 4, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar