Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Mosfellsbær - þjónusta og ráðgjöf - sumarstarf

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í sumar í Lyfju Mosfellsbæ. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Starfið:

Um sumarstarf er að ræða með möguleika á áframhaldandi starfi samhliða námi í haust. Vinnutími er á opnunartíma verslunar eða samkvæmt samkomulagi.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar veitir Hróðmar Jónsson, lyfsali í Lyfju Mosfellsbæ í síma 416-0100 og á [email protected]

Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt25. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Háholt 3, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar