Landsbankinn
Landsbankinn
Landsbankinn

Lögfræðingur

Við leitum að lögfræðingi til starfa í Lögfræðiþjónustu. Í Lögfræðiþjónustu Landsbankans starfar samhent teymi lögfræðinga sem sinna fjölbreyttum verkefnum og ráðgjöf til allra eininga bankans. Deildin heyrir í skipuriti bankans undir bankastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Lögfræðileg greining og ráðgjöf í tengslum við viðskiptabankastarfsemi og fjármálaþjónustu
  • Verkefni á þeim sviðum lögfræðinnar sem varða starfsemi bankans, m.a. samningaréttar, kröfuréttar, félagaréttar, fjármálaþjónusturéttar og Evrópuréttar
  • Skjala- og samningagerð
  • Greining á áhrifum breytinga á ytra regluverki
  • Þátttaka í innleiðingu nýrrar löggjafar og annarra reglna í starfsemi bankans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði frá íslenskum háskóla
  • Mjög góður árangur í starfi á sviði lögfræði og/eða í lögfræðinámi
  • Reynsla/hæfni í lögfræðilegri greiningu
  • Framúrskarandi færni í rituðu máli á íslensku og góð enskukunnátta
  • Fagmennska, sjálfstæð vinnubrögð og færni í samskiptum
  • Framhaldsmenntun (LL.M. eða sambærilegt) er kostur
  • Starfsreynsla í fjármálafyrirtæki eða fjármálaþjónustu er kostur
  • Starfsreynsla eða sérþekking á þeim sviðum lögfræðinnar sem varða starfsemi bankans er kostur
Auglýsing birt25. nóvember 2026
Umsóknarfrestur7. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar