
Lögfræðistofa Selfoss
Lögmannsstofa á Selfossi sem sinnir allri almennri lögfræðiráðgjöf og þjónustu. Þjónustum viðskiptavini um allt land en erum með skrifstofu á Selfossi. Áherslur stofunnar lúta að málaflokkum er varða mannréttindi, s.s. sakamálum, flóttamannarétti, réttindum innflytjenda, lögræðismálum, skiptarétti, fjölskyldumálum o.fl.

Löglærður fulltrúi
Lögfræðistofa Selfoss leitar að löglærðum fulltrúa í tímabundið starf með möguleika á lengri ráðningu. Helstu verkefni stofunnar eru á sviði sakamála, útlendingamála, fjölskylduréttar, skiptaréttar og mannréttinda. Löglærður fulltrúi vinnur náið með eiganda stofunnar og öðru starfsfólki að fjölbreyttum verkefnum. Starfið krefst ríklegrar samstarfshæfni og getu til að sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. júní nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Lögfræðileg ráðgjöf
- Málflutningur og undirbúningur málflutnings
- Mætingar hjá dómstólum og stofnunum (umsækjandi þarf að hafa bifreið til umráða)
- Rekstur stjórnsýslumála
- Skjalagerð
- Ýmis skrifstofustörf tengd verkefnum stofunnar
- Ýmis önnur verkefni og hagsmunagæsla fyrir viðskiptavini og skjólstæðinga stofunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistarapróf í lögfræði frá viðurkenndum háskóla
- Málflutningsréttindi eru ekki áskilin en mikill kostur
- Reynsla af lögfræðistörfum
- Gott vald á íslensku og ensku ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og samvinnufærni
- Geta til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi
- Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum
- Mjög góð tölvukunnátta
- Amenn ökuréttindi
Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur8. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 4, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
