Reitir
Reitir
Reitir

Lögfræðingur

Reitir leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf lögfræðings. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem viðkomandi verður hluti af lögfræðiteymi Reita og kemur að verkefnum sem tengjast daglegum rekstri og þróun félagsins. Starfið felur í sér lögfræðilega ráðgjöf og úrlausn mála sem styðja við starfsemi Reita, auk náins samstarfs við önnur svið félagsins og ytri hagaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samningagerð. Einkum gerð leigusamninga, kaupsamninga, verksamninga og önnur skjalagerð.
  • Þátttaka í verkefnum á sviði regluvörslu og innra eftirlits, þar á meðal aðgerðum gegn peningaþvætti (AML).
  • Verkefni tengd fjármögnun félagsins.
  • Greining og úrlausn álitaefna og ágreiningsefna eftir því sem við á.
  • Samskipti og ráðgjöf við ytri aðila, s.s húsfélög.
  • Samstarf og þátttaka í verkefnum með öðrum sviðum félagsins 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði  
  • Að lágmarki 4 ára starfsreynsla sem nýtist í starfi  
  • Reynsla og þekking á sviði samningaréttar, leiguréttar, félagaréttar og fjármunaréttar er nayðsynleg
  • Góð greiningar- og ályktunarhæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt og undir álagi
  • Góð samskiptahæfni og færni í teymisvinnu
  • Mjög góð kunnátta íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti  
Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar