Samkeppniseftirlitið
Samkeppniseftirlitið
Samkeppniseftirlitið

Lögfræðingur með brennandi áhuga á samkeppnismálum

Samkeppniseftirlitið leitar að öflugum lögfræðingi sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í mótun samkeppnisréttar á Íslandi. Lögfræðingar Samkeppniseftirlitsins taka þátt í og bera ábyrgð á rannsóknum og úrlausnum samkeppnismála á ýmsum sviðum atvinnulífsins ásamt því að sinna öðrum áhugaverðum verkefnum og lögfræðilegum úrlausnarefnum á sviði samkeppnisréttar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á trausta lögfræðilega þekkingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rannsókn og úrlausn samkeppnismála á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins 
  • Greining og úrlausn annarra lögfræðilegra álitaefna 
  • Greiningar á mörkuðum og samkeppnisstöðu fyrirtækja
  • Skrif álita og skýrslna auk umsagna til Alþingis og ráðuneyta 
  • Þátttaka í erlendu samstarfi 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði 
  • Reynsla af samkeppnis- eða stjórnsýslurétti
  • Reynsla og þekking á Evrópurétti kostur 
  • Frumkvæði og sjálfstæði við úrlausn viðfangsefna 
  • Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni í samskiptum og þverfaglegri samvinnu 
  • Geta til að vinna undir álagi 
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, í mæltu og rituðu máli. Þekking á Norðurlandamáli kostur
  • Þekking og áhugi á hagfræði og viðskiptalegum málefnum er kostur
Auglýsing birt30. janúar 2026
Umsóknarfrestur9. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar