

Lögfræðingur
Samgöngustofa leitar að öflugum lögfræðingi í lögfræðideild stofnunarinnar. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100%.
Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun í alþjóðlegu umhverfi. Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu og frábæra vinnufélaga.
· Samning lagafrumvarpa og reglugerða, ásamt þátttöku í vinnu við innleiðingu reglugerða Evrópusambandsins á sviði samgöngumála, í samvinnu við innviðaráðuneytið.
· Lögfræðileg aðstoð við starfsfólk stofnunarinnar.
· Skrif álitsgerða og framsetning lögfræðilegs efnis í riti og á vef.
· Svar almennra lagalegra fyrirspurna á starfssviði Samgöngustofu.
· Samskipti við innlend stjórnvöld og hagsmunaaðila.
· Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi.
· Grunn- og meistaranám í lögfræði.
· Haldgóð reynsla eða þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu er æskileg.
· Reynsla eða þekking á Evrópurétti, þjóðarétti og EES-samningnum er nauðsynleg.
· Reynsla og þekking á regluverki samgöngumála er æskileg.
· Mjög gott vald á íslensku og ensku, í rituðu og töluðu máli nauðsynlegt. Góð færni í einu Norðurlandamáli æskileg.
· Góð samskiptahæfni og jákvætt og lausnamiðað viðhorf sem styrkir og auðveldar teymisvinnu.
· Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Enska
Íslenska










