
Gæða- og öryggisstjóri
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir að ráða kraftmikinn gæða- og öryggisstjóra til að leiða þróun, innleiðingu og eftirfylgni gæðakerfa og öryggismála hjá stofnuninni. Starfið heyrir undir mannauðs- og rekstrarsvið. Leitað er að lausnamiðuðum sérfræðingi með hæfni til að byggja upp öfluga gæða- og öryggismenningu og ná árangri með þverfaglegri samvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móta, innleiða og viðhalda gæðastjórnunarkerfi og verklagsreglum FSRE ásamt því að leiða stöðugar umbætur og innri úttektir.
- Stýra öryggismálum stofnunarinnar í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.
- Samhæfa áhættustýringu og innra eftirlit, skilgreina lykilviðmið ásamt eftirfylgni með frávikum.
- Annast fræðslu og þjálfun starfsfólks ásamt því að efla öryggis- og gæðamenningu.
- Þátttaka í stefnumótun, umbótaverkefnum og uppfærslu verklagsreglna er snúa að gæða- og öryggismálum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur.
- Reynsla af uppbyggingu og rekstri gæðakerfa.
- Þekking og reynsla af öryggisstjórnun er kostur.
- Reynsla af vottuðu gæðakerfi á borð við ISO9001 og af notkun áhættustýringartækja er kostur.
- Reynsla af innri og ytri úttektum, frávikastýringu og umbótavinnu.
- Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Þekking á verklegum framkvæmdum, viðhaldi og rekstri mannvirkja er kostur.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð nálgun.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Um FSRE
FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflun húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins sem samanstendur af 530 þúsund m² húsnæði í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Jafnframt er unnið að fjölbreyttum fasteignaverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði.
Hjá FSRE starfa um 70 einstaklingar með breiða þekkingu á sviði fasteignarekstrar, framkvæmda og eignastýringar. Um er að ræða spennandi vinnustað sem er á fleygiferð inn í framtíðina og boðið er upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Lögð er áhersla á að styðja starfsfólk FSRE í þekkingaröflun, m.a. í gegnum alþjóðlegt tengslanet.
Umsóknarfrestur er til og með 18. desember 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Um fullt starf er að ræða.
FSRE hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511-1225.
Íslenska
Enska









