Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

List– og verk­greina­kennari

Leitað er að metn­að­ar­fullum, sjálf­stæðum og dríf­andi starfs­manni með mikla þekk­ingu og áhuga á skóla­starfi. Um er að ræða allt að 100% starf, mögu­leiki er á minna starfs­hlut­falli. Starfið hefur fasta starfs­stöð á Patreks­firði en felur jafn­framt í sér mögu­leika á kennslu við annan grunn­skóla í Vest­ur­byggð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Birna Friðbjört S. Hannesdóttir, skólastjóri grunskóla Vestirbyggðar. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected]. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla s.s. Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor ofl.
Auglýsing birt18. ágúst 2026
Umsóknarfrestur28. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Aðalstræti 55, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar