Leikskólinn Skýjaborg
Leikskólinn Skýjaborg
Leikskólinn Skýjaborg

Leikskólinn Skýjaborg auglýsir lausar stöður við sumarafleysingar frá vori 2026

Óskað er eftir glöðum og jákvæðum leikskólakennurum / starfsfólki í sumarafleysingar í leikskólanum Skýjaborg Hvalfjarðarsveit. Ráðning er annars vegar frá 7. apríl, hins vegar 15. apríl og/eða í maí og fram í miðjan júlí eða út ágúst. Leikskólinn er lokaður 10. júlí til og með 7. ágúst.

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í því spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæka íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.

Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla.
  •  Vinna í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu*, háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af vinnu með börnum  
  • Góð samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
  • Hæfni til að vinna í teymi

*Ef ekki fást leikskólakennarar verður horft til menntunar og reynslu. Við hvetjum því öll áhugasöm til að sækja um.

Fríðindi í starfi
  • 35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30. 
  • 6 skipulagsdagar á ári.
Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur24. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Innrimelur 1, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar