
Góði hirðirinn
Markmið Góða hirðisins er að endurnýta nytjahluti til áframhaldandi lífs og við tökum vel á móti viðskiptavinum okkar. Ágóði af sölu nytjarhluta í Góða hirðinum rennur til góðgerðarmála, úthlutun fer fram einu sinni til tvisvar á ári.

Leiðtogi í netverslun Góða hirðisins
Góði hirðirinn óskar eftir öflugum og drífandi einstakling í stöðu leiðtoga netverslunar.
Leiðtogi netverslunar ber ábyrgð á daglegri starfsemi og þróun netverslunar Góða hirðisins. Vinnur að auknu endursöluhlutfalli á godihirdirinn.is, tryggir skipulag, öryggi og snyrtimennsku í vinnuumhverfi og stuðlar að góðri upplýsingamiðlun innan teymisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með vöruframboði, innkaupum og verkferlum netverslunar
- Val, verðlagning og myndataka á vörum fyrir netverslun
- Afgreiðsla pantana og þjónusta við viðskiptavini
- Samskipti við þjónustuaðila og samstarf við aðrar deildir
- Þjálfun nýrra starfsmanna og hvatning til starfsfólks
- Umsjón með öryggismálum og vinnuferlum netverslunar
- Skipulag og uppfærsla á vefverslun í Wagtail
- Uppgjör og greiðslur í gegnum Áskel
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Hafa gott auga fyrir vöruframboði
- Hafa skipulagshæfni og góða hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi
- Nákvæmni, frumkvæði, metnaður og öguð vinnubrögð
- Hafa góða tölvufærni, þ.m.t. á Office, SharePoint, Buisness Central, Áskell og Wagtail
- Hafa áhuga og þekkingu á hringrásarkerfinu og endurnýtingu.
- Hafa ríka öryggisvitund og sýna hana í verki
- Hafa gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt18. júní 2025
Umsóknarfrestur28. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 1, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HugmyndaauðgiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Lager / afgreiðsla - Flugstöðin Keflavík
Penninn Eymundsson

Sölu og þjónusturáðgjafar
Nova

Lagerstjóri
Landstólpi ehf

ICEWEAR Garn Akureyri óskar eftir starfsfólki í hlutastarf
ICEWEAR

A4 Akureyri - Sölufulltrúi í verslun
A4

Afgreiðslu og lagerstarf
Würth á Íslandi ehf

Lager Útideild
Vatnsvirkinn ehf

Nettó Húsavík - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó

Starfsmaður í hreinlætistækjadeild - BYKO Breidd
Byko

Starfsmaður í timburafgreiðslu - BYKO Suðurnesjum
Byko

Helgarstarf - Dýrabær í Krossmóa, Reykjanesbæ
Dyrabær

Tínslufólk á kvöldvakt
Innnes ehf.