Reykhólahreppur
Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Lausar kennarastöður við Reykhólaskóla í Reykhólahreppi

Reykhólahreppur auglýsir eftir kennurum við Reykhólaskóla lausar til umsóknar. Auglýst er eftir kennurum sem geta kennt á öllum stigum, kostur er að geta kennt list- og verkgreinakennar. Kennt er í námstímabilum og komin góð reynsla á það. Skólinn er samrekinn leik- og grunnskóli með frístund og tónlistardeild undir einu þaki. Í samreknum skóla eru um 50 nemendur, um 35 nemendur í grunnskóladeild. Einkunnarorð skólans eru Vilji er vegur. Nánari upplýsingar um skólann er hægt að sjá á reykholaskoli.is. Reykhólar er sveitarfélag með um 270 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum. Ráðið verður í störfin frá og með 1. ágúst nk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samkennsla á yngsta stigi
  • Samkennsla á miðstigi
  • Samkennsla á unglingastigi
  • Kennsla í list- og verkgreinum
  • Teymiskennsla með öllum kennurum skólans eftir þörfum
  • Ber ábyrgð á námi- og velferð nemendahópsins
  • Vinna samkvæmt skólastefnu Reykhólaskóla og Reykhólahrepps
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf
  • Metnaður og hæfni til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum með áherslu á samþættingu og leiðsagnarnám
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hefur hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi

Sá sem ráðinn verður í starfið nýtur jafnframt ýmissa hlunninda, þar á meðal flutningastyrks, gjaldfrjáls leikskóla og líkamsræktarstyrks. Svæðið býður upp á einstaka nálægð við náttúru og rólegt, fallegt umhverfi.

Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur3. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skólabraut 1, 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar